
Samtök áhugafólks um skólaþróun hafa birt tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 og er Grundaskóli tilnefndur.
Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna stendur að kjörinu og er þetta í sjöunda skipti sem verðlaunin eru veitt eftir að þau voru endurreist 2020.

Þar kemur eftirfarandi fram:
„Grundaskóli á Akranesi er tilnefndur í flokki framúrskarandi menntastofnana fyrir fjölbreytt og gróskumikið og margháttað þróunarstarf sem hefur m.a. beinst að því að koma sem best til móts við ólíkar þarfir nemenda.“





