Tónlistarskólinn á Akranesi fékk nýverið veglegan styrk til hljóðfærakaupa úr Minningarsjóði Geirlaugs K. Árnasonar, en Geirlaugur var einn helsti hvatamaðurinn að stofnun skólans fyrir rúmum 70 árum. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar. 

Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri tónlistarskólans tók við styrknum sem er rúmlega 1,7 milljónir kr.  Bræðurnir Kári – og Geirlaugur Geirlaugssynir afhentu styrkinn. 

Nánar á vef Akraneskaupstaðar.