Sigrún Eva Sigurðardóttir leikmaður ÍA og félagar hennar í U-17 ára landsliði Íslands unnu góðan sigur í dag á liði Aserbaídsjan sem fram fór í Bakú. Ísland skoraði tvívegis í leiknum.
Mörkin skoruðu Clara Sigurðardóttir og Helena Ósk Hálfdánardóttir skoruðu mörk Íslands.Sigrún Eva kom ekki við sögu í leiknum í dag. Næsti leikur er gegn Svartfjallalandi á fimmtudaginn og gegn Spánverjum á sunnudaginn.