Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Ísak Bergmann Jóhannesson léku báðir stórt hlutverk í 2-0 sigri Íslands gegn Svartfjallalandi í Þjóðadeild karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram í Niksic í Svartfjallalandi. Stefán Teitur var í byrjunarliði Íslands og Ísak Bergmann kom inná sem varamaður í síðari hálfleik -og gulltryggði sigur Íslands með glæsilegu skoti. Þetta var 3...
Íbúar á Akranesi voru alls 8.452 í þann 14. nóvember 2024. Þetta kemur fram í nýjustu fundargerð Bæjarstjórnar Akraness. Mesta fjölgunin á einu ári var árið 2008 þegar aukning var 425 íbúar – en það sem af er þessu ári hefur íbúum á Akranesi fjölgað um 417, og gæti nýtt met fallið í þessum efnum í...
Karlalið ÍA vann góðan sigur gegn Breiðabliki í næst efstu deild Íslandsmótsins í körfuknattleik í gærkvöld. ÍA hefur nú unnið fimm leiki af alls sjö það sem af er tímabilinu og er liðið í þriðja efsta sæti deildarinnar. Fyrir leikinn voru ÍA og Breiðablik bæði með 8 stig og gefur sigurinn liði ÍA byr undir báða vængi...
Sundfólk úr röðum ÍA náði glæsilegum árangri á Íslands – og unglingameistaramótinu sem fram fór um s.l. helgi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Alls voru 8 keppendur frá ÍA en keppendur voru alls 174 og komu frá 10 félögum víðsvegar af landinu. Uppskeran var góð hjá ÍA, alls þrjú gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og sjö brons verðlaun. Akranesmet voru...
Aðsend grein: Reglulega kemur upp umræða um jarðir, jarðaviðskipti og kynslóðaskipti í landbúnaði. Í ritinu Ræktum Ísland, skýrslu Björns Bjarnasonar og Hlédísar Sveinsdóttur, er efninu gerð verðug skil. Þá hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins ítrekað flutt frumvörp um ýmsar aðgerðir til að auðvelda ættliðaskipti á bújörðum. Fullveldið er í húfiOf lítil umræða hefur verið um skýrslu um jarðir, sem...
VÍS opnar tímabundið skrifstofu á Akranesi á miðvikudögum og fimmtudögum milli 10-15 í nóvember. Skrifstofan er staðsett í húsnæði Domusnova, Kirkjubraut 40, og verða þar að jafnaði tveir starfsmenn sem taka vel á móti fólki. Guðmundur Ólafs og Gísli Ólafsson. „Við viljum vera til staðar fyrir viðskiptavini okkar og vitum að nálægð skiptir miklu máli. Það...
Njörður Holding ehf. hefur kynnt sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og bæjarstjórn Akraness áform þess efnis að byggja magnesíumverksmiðju við Grundartanga.Frá þessu er greint í Morgunblaðinu.Stefán Ás Ingvarsson, forstjóri fyrirtækisins, segir í viðtali að stefnt sé að fyrstu skóflustungu árið 2026. Verksmiðjan mun vinna magnesíum úr sjó með nýrri aðferð sem Njörður hefur þróað og er sjálfbær og umhverfisvæn....
Aðsend grein: Allir landsmenn eiga að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag og búsetu. Góðar samgöngur í okkar dreifbýla landi skipta þar lykilmáli. Margir íbúar Norðvesturkjördæmis þurfa að sækja heilbrigðisþjónustu um langan veg, yfir heiðar eða undir hættulegum hlíðum, auk þess að búa við takmarkaða vetrarþjónustu sem getur heft för. Fyrsta hjálp getur skipt sköpum....
Carbfix, Elkem á Íslandi og Þróunarfélag Grundartanga undirrituðu nýverið samning sem miðar að því að Carbfix bindi CO2 frá kísilmálmveri Elkem á Grundartanga. Þetta kemur fram í tilkynningu. Meginmarkmið samstarfsins er að fanga koldíoxíð úr útblæstri Elkem og binda til frambúðar með því að nýta sannaða og örugga aðferð Carbfix til að umbreyta gasinu í stein...
Aðsend grein: Frá árinu 2007 hefur ferðasjóður íþróttafélaga fengið framlag á fjárlögum Alþingis og er ljóst að ferðasjóðurinn þarf að fá verulega hækkun á fjárlögum á næstu árum. Framlag ríkisins í ferðasjóðinn er beinn fjárhagslegur stuðningur við iðkendur í íþróttum og fjölskyldur þeirra og þá sérstaklega íbúa landsbyggðarinnnar sem þurfa að fara um langan veg mörgum sinnum...