• Golfklúbburinn Leynir óskaði í lok apríl á þessu ári eftir samningi við Akraneskaupstað um landsvæði til stækkunar á Garðavelli á Akranesi úr 18 holum í 27 holur. Nánar er fjallað um þá umsókn hér: Skipulags- og umhverfisráð Akraness tók erindið fyrir nýverið. Þar kemur fram að ráðið taki jákvætt í frekari þróun golfsvæðisins. Í fundargerð ráðsins kemur fram...

  • Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Heilbrigðisráðuneytið skrifuðu nýverið undir viljayfirlýsingu um stækkun Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi. Með yfirlýsingunni er stefnt að því að fjölga hjúkrunarrýmum um 29 og er það um 40% stækkun. Viljayfirlýsingin er með fyrirvara um fjárveitingu til verksins.  Það voru Andrea Ýr Arnardóttir oddviti Hvalfjarðarsveitar, Einar Brandsson formaður stjórnar Höfða, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og...

  • Landsmót Samfés og Landsþing ungs fólks fór fram um nýliðna helgi á Akranesi.Um 450 tóku þátt, unglingar á aldrinum 13-16 ára og starfsfólk frá 76 félagsmiðstöðvum víðsvegar að af landinu komu saman.Meðal þess sem kom fram á þinginu er að er að ungt fólk telur mikilvægt að auka fjármagn til reksturs félagsmiðstöðva og ungmennahúsa. Auk...

  • Akraneskaupstaður fékk töluvert af umsóknum um þær byggingalóðir sem standa til boða á árinu 2024. Á fundi sem fram fór þann 26. september s.l. fór fram útdráttur um lóðirnar að viðstöddum fulltrúa sýslumannsins á Vesturlandi.  Niðurstaðan var eftirfarandi:  A. Skógarlundur 12 (einbýlishús), 2 umsóknir.Dreginn var út: Guðjón Theodórsson. B.Suðurgata 106 (fjölbýlishús), 2 umsóknir.Dreginn var út:Snæbreið...

  • Innviðaráðuneytið hefur kynnt tillögur til þess að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni – og þar á meðal á Akranesi. Ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu eiga kost á að sækja um styrki til að ráða í óstaðbundin störf á þeirra vegum utan höfuðborgarsvæðisins, m.a. til að mæta kostnaði við aðstöðu fyrir starfsfólk.Kynning á þessu verkefni verður kl. 17.00 miðvikudaginn...

  • Framkvæmdir eru byrjaðar við endurbætur við Hafnarbraut á Akranesi.Verktakar hafa nú þegar fjarlægt gangstéttina sem hefur verið slysagildra í mörg ár og einnig verða gerðar endurbætur á götunni sjálfri. Hér eru myndir sem teknar voru í byrjun vikunnar en ekki liggur fyrir hvenær framkvæmdum ljúki.   

  • Skagamaðurinn Stefán Teit­ur Þórðar­son leikur með enska liðinu Preston North End – en liðið leikur í næst efstu deild á Englandi.Preston komst áfram í 16-liða úrslit enska deildabikarsins og þar verður Arsenal mótherji liðsins.Stefán Teitur hefur frá barnæsku haldið með liði Arsenal og verður það án efa skemmtilegt fyrir landsliðsmanninn að fá tækifæri að mæta...

  • Nýtt íþróttahús við Jaðarsbakka mun breyta miklu hvað varðar aðstöðu fyrir skólaíþróttir og íþróttafélög á Akranesi – en áætlað er að það hús verði tilbúið til notkunar sumarið 2025. Íþróttahúsið við Jaðarsbakka var tekið í notkun í lok ágúst árið 1988 en það hús var reist á þremur árum – og tóku margir sjálfboðaliðar þátt í...

  • ÍA og Breiðablik áttust við í gær í úrslitaleik bikarkeppni 2. flokks karla en leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. Skagamenn gerðu sér lítið fyrir og lögðu Blika 3-2 í hörkuleik og er ÍA því bikarmeistari 2024 í 2. flokki karla.Jón Breki Guðmundsson kom ÍA í 1-0, og þannig var staðan í hálfleik. Börkur Bernharð Sigmundsson...

  • Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Skagakonan hefur verið settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar frá því stofnunin tók til starfa 1. júlí sl., en Alþingi samþykkti í maí á þessu ári frumvarp um nýja Náttúrufræðistofnun.Stofnunin varð til er Landmælingar Íslands, Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn og Náttúrufræðistofnun...

Loading...