Nýverið var skrifaði Akraneskaupstaður undir verksamning við Borgarverk ehf um endurgerð á Faxabrautinni og grjótvörn meðfram henni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað.
Verkefnið sem um ræðir er stór þáttur til að uppbygging á Sementsreitnum geti hafist en hækka þarf yfirborð götunnar umtalsvert og laga sjóvarnargarð áður til að tryggja öryggi fyrir uppbyggingu svæðisins.
Alls bárust fjögur tilboð í verkið og þar voru Borgarverks menn hlutskarpastir en tilboð þeirra var uppá 467 m.kr eða 87,9% af áætluðum verktakakostnaði.
Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupsstaðar, Veitna og Mílu og var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu.
Helstu magntölur í verkinu eru:
Rif steypu í vegum og stéttum | 10.000 m² |
Fyllingar | 9.300 m³ |
Götulýsing, skurðgröftur og strengir | 1.000 m |
Rafstrengir | 300 m |
Fráveitulagnir | 1.300 m |
Kaldavatnslagnir | 200 m |
Hitaveitulagnir | 400 m |
Styrktarlag | 4.500 m³ |
Burðarlag | 2.200 m³ |
Malbik | 16.000 m² |
Grjótvörn | 37.000 m³ |
Göngustígar | 700 m² |
Kantsteinar | 1.850 m |
Stefnt er að verktaki hefjist handa með haustinu og að verkinu verði að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2021.