Golfskálinn hjá Leyni á Akranesi var þéttsetinn í gærkvöld þegar fjölmenni fagnaði heimkomu atvinnukylfingsins Valdísar Þóru Jónsdóttur – sem tryggði sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni með glæsilegum hætti nýverið. Valdís Þóra fékk fjölmargar góðar kveðjur og Þórður Emil Ólafsson formaður Leynis sagði að klúbburinn ætlaði að styrkja Valdísi um 250.000 kr. í tilefni árangursins.
Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ, Sigurhans Vignir úr stjórn Forskots afrekssjóðs og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraness héldu stuttar ræður þar sem afrek Valdísar voru rifjuð upp.
Marella Steinsdóttir frá ÍA og Hlynur Geir Hjartarson þjálfari hennar héldu einnig ræður og var ekki laust við að miklar tilfinningar brytust þar fram.
Valdís Þóra lauk síðan kvöldinu með flottri ræðu og ríkti mikil gleði hjá félagsmönnum úr Leyni og fjölskyldu Valdísar sem voru samankomin í golfskálanum.
Aðeins fjórir íslenskir kylfingar hafa frá árinu 2004 náð að tryggja sér keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröðum heims í Evrópu og Bandaríkjunum. Og þar af eru tveir þeirra frá Akranesi. Birgir Leifur Hafþórsson er eini karlkylfingurinn sem hefur náð inn á Evrópumótaröðina í karlaflokki en Valdís Þóra er þriðja íslenska konan sem nær inn á LET Evrópumótaröðina.