„Drekar“ á ferð við Langasand

Það var mikið fjör á Langasandi um helgina þar sem stór hópur manna var á ferð með ýmis tæki til siglinga. Þar voru stór segl áberandi hjá þeim sem stunda „parasailing“ þar sem stór fallhlíf dregur þá sem það stunda áfram.

Eins og gefur að skilja var „kári“ frekar áberendi um helgina á Akranesi og þykir Langisandur einn besti staðurinn til þess að stunda þá íþrótt við þessar aðstæður.