Skagamaðurinn Jóhann Magnússon hefur vakið athygli með skemmtilegri útfærslu á góðgæti sem nota má á sjálfan bolludaginn.
Jóhann rekur Verslunina Albínu á Petreksfirði og án efa verður ísbollan vinsæl hjá gestum og gangandi á mánudaginn.
Jóhann er fæddur árið 1969 á Akranesi en hann er sonur Magnúsar Villa Vilhjálmssonar frá Efstabæ og Sigrúnar Jóhannsdóttur frá Ólafsvöllum á Akranesi. Magnús Villi lést árið 2014.
Systkini Jóhanns eru Benedikt (1968), Guðrún (1974) og Vilhjálmur (1978).
Auglýsing
Auglýsing