Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness verður haldinn mánudaginn 29. apríl kl. 17:00 í Gamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2019/04/31706621_1626769437358370_7475143819931942912_o-1132x670.jpg)
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
- Kosningar sem þurfa að fara fram á aðalfundi samkvæmt 28. grein laga félagsins.
- Kynning á hækkun á greiðslum úr sjúkrasjóði.
- Breyting á lögum félagsins (14. og 29. grein).
- Önnur mál.
Á aðalfundi verða ekki afgreiddar með atkvæðagreiðslu aðrar tillögur og ályktanir en þær sem borist hafa til skrifstofu félagsins 5 dögum fyrir aðalfund eins og 28. grein laga félagsins kveður á um.
Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu félagsins 10 dögum fyrir aðalfund. Komi tillögur eða ályktanir fram þá munu þær liggja frammi á skrifstofu félagsins og verða einnig kynntar á heimasíðu félagsins.
Rafræn kosning um nýju samninga stendur yfir til 24. apríl. Smelltu hér til að kjósa.
Boðið verður upp á kvöldverð eftir fundinn.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2019/04/Screen-Shot-2019-04-17-at-9.30.45-PM-1024x595.png)