Myndasyrpa: ÍA – Grindavík – Inkasso deild kvenna


ÍA og Grindavík áttust við í kvöld í Inkasso-deild kvenna á Norðurálsvellinum á Akranesi.

Aðstæður verða vart betri en í kvöld. Sól og blíða.

Leikmenn beggja liða lögðu sig fram en færin voru fá – en það voru gestirnir úr Grindavík sem fengu betri færi.

Leikurinn endaði 0-0. ÍA er með 5 stig í 4. sæti Inkasso-deildarinnar en Grindavík er með 4 stig.

Leikurinn var í beinni útsendingu á ÍATV.