Björn Viktor þriðji á Íslandsbankamótaröð unglinga í golfi


Annað mót tímabilsins á Íslandsbankamótaröð unglinga fór fram á Strandarvelli hjá Golfklúbbnum á Hellu um s.l. helgi.

Alls tóku sex keppendur frá Leyni þátt þar af ein stúlka.

Björn Viktor Viktorsson sem er lengst til vinstri á myndinni varð þriðji í flokki 15-16 ára pilta. Björn lék á 71-74 höggum og var samtals á +5. Sigurvegarinn Breki Gunnarsson Arndal (GKG) var á +3 samtals og hafði betur í bráðabana um sigurinn gegn Böðvari Braga Pálssyni (GR).

Keppt var í fjórum aldursflokkum hjá piltum og þremur hjá stúlkum. Tæplega 130 keppendur tóku þátt og komu þeir frá alls 11 golfklúbbum víðsvegar af landinu.

Flestir voru úr GKG eða alls 32, GR var með 23 keppendur, GK 20 og GM 18.

KlúbburFjöldi keppenda
Golfkl. Kópavogs og Garðabæjar32
Golfklúbbur Reykjavíkur23
Keilir Hafnarfjörður20
Golfklúbbur Mosfellsbæjar18
Golfklúbbur Selfoss8
Golfklúbbur Akureyrar7
Golfklúbburinn Leynir6
Nesklúbburinn4
Golfklúbbur Suðurnesja4
Golfklúbbur Vestmannaeyja3
Golfklúbbur Ísafjarðar1