Nýr leikskóli á teikniborðinu – Garðasel fær nýtt hlutverk


Nýr leikskóli verður byggður á Akranesi og hefjast framkvæmdir á árinu 2020. Gert er ráð fyrir að kennsla í skólanum geti hafist árið 2021.

Tillaga þess efnis var samþykkt í bæjarráði Akraness þann 27. júní s.l.

Ekki er búið að ákveða hvar nýr leikskóli verður staðsettur en horft er til Skógarhverfis.

Gert er ráð fyrir að leikskólinn Garðasel flytji úr núverandi húsnæði í nýja leikskólann og skapar það hagræði í stjórnun og rekstri.

Núverandi húsnæði Garðasels og lóð mun þá nýtast Grundaskóla og mæta að einhverju leyti húsnæðisþörf skólans.

„Með byggingu nýs leikskóla er markmiðið að mæta eftirspurn eftir leikskólaplássum, auka þjónustustig við börn á leikskólaaldri með því að taka yngri börn inn á leikskóla og til þess að mæta væntanlegri íbúafjölgun.

Jafnframt er markmiðið að minnka álagið á eldri leikskólum bæjarins með því að fækka börnum á elstu leikskólunum og bæta þannig starfsaðstæður barna og starfsmanna í eldri byggingum leikskólanna,“ segir í fundargerð bæjarráðs.