„Skagapassinn“ -nýtt og áhugavert tilraunaverkefni í ferðaþjónustu


Að undanförnu hefur Akraneskaupstaður unnið að áhugaverðu verkefni í samstarfi við veitingaaðila í bæjarfélaginu.

Niðurstaða er komin í málið og verður Skagapassinn keyrður áfram sem tilraunaverkefni út árið 2020.

Passinn gengur út á það að fullorðnir einstaklingar geta keypt sér passa á aðeins 1.500 kr. og fá með passanum aðgang fyrir einn að Jaðarsbakkalaug, Akranesvita og Byggðasafninu í Görðum.

Þess má geta að aðgangur er ókeypis fyrir einstaklinga undir 18 ára aldri að þessum þremur stöðum. Jafnframt gefur passinn handhafa 15% afslátt af mat á fimm veitingastöðum á Akranesi gegn framvísun hans.

Til að byrja með verður passinn til sölu í Akranesvita, Jaðarsbakkalaug og á Byggðasafninu og hefst sala miðvikudaginn 17. júlí.

Veitingastaðirnir sem um ræðir eru Gamla Kaupfélagið, Galito, Kallabakarí, Galito Bistro og Skagakaffi sem opnar um næstu mánaðarmót við Akratorg.