Frábær samantekt hjá ÍATV – sjáðu mörkin gegn Levadia Tallinn


Íslandsmeistaralið 2. flokks karla í knattspyrnu, ÍA/Kári/Skallagrímur, vann stóran sigur gegn Levadia Tallinn í 1. umferð UEFA Unglingadeildinni á Akranesvelli í gær.

Lokatölur 4-0. Síðari leikurinn fer fram þann 23. okt. í Lettlandi og er staða ÍA/Kára/Skallagríms nokkuð góð fyrir þann leik.

Samanlagður árangur úr leikjunum ræður úrslitum.

ÍATV var með frábæra útsendingu frá leiknum í gær. Notaðar voru þrjár myndavélar – og var þetta viðamesta útsending ÍATV frá upphafi.

Viðtökurnar voru eftir því. Rúmlega 4100 hafa horft á leikinn á Youtube frá því í gær.

http://localhost:8888/skagafrettir/2019/10/02/glaesilegur-sigur-gegn-levadia-fra-tallinn-i-unglingadeild-uefa/
http://localhost:8888/skagafrettir/2019/10/02/myndasyrpa-sjadu-flottu-fognin-i-storsigri-2-flokks-i-uefa-keppninni/