ÍA og HK með flesta áhorfendur á útileikjum í Pepsi – Max deild karla


Það var mikill áhugi á leikjum ÍA í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á árinu 2019. Að meðaltali mættu 1.057 áhorfendur á hvern leik á Norðurálsvöll en slíkur fjöldi hefur ekki mætt að meðaltali frá árinu 2012 þegar 1.280 áhorfendur mættu að meðaltali.

Elfa Björk Sigurjónsdóttir, einn harðasti stuðningsmaður ÍA, og fyrrum starfsmaður KFÍA birtir áhugverða samantekt um aðsóknina á fésbókarsíðu sinni.

Þar kemur í ljós að ÍA og HK eru með flesta áhorfendur á útileikjum að meðaltali.

Alls mættu 134.354 áhorfendur á leikina 132 í Pepsi Max deild karla 2019, sem gerir 1.018 manns að meðaltali á hvern leik. Flestir mættu á heimaleiki Íslandsmeistara KR, eða 1.623 að jafnaði, en alls voru 7 af félögunum 12 í deildinni með yfir eitt þúsund áhorfendur að meðaltali á sína heimaleiki.

Ellefta umferðin reyndist sú best sótta en meðalaðsóknin að leikjum þeirrar umferðar var 1.368. Alls var meðalaðsóknin yfir eitt þúsund í 14 umferðum af 22, en þó í aðeins einni umferð af síðustu sjö.

Meðaltal á heimaleikjum í Pepsi-Max deild karla 2019

FélagMeðaltal
KR1623
Breiðablik1218
FH1206
Fylkir1141
Valur1110
ÍA1057
Stjarnan1026
Víkingur982
HK874
KA819
Grindavík579
ÍBV479
Meðaltal alls1018