Umsókn ÍA um inngöngu í UMFÍ samþykkt


Íþróttabandalag Akraness, ÍA, er gengið í raðir UMFÍ.

ÍA sótti um inngöngu í Ungmennafélag Íslands ásamt tveimur öðrum íþróttabandalögum og var umsóknin tekin fyrir sambandsþingi UMFÍ í gær.

Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) og Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) gengu einnig í raðir UMFÍ.

ÍA er þar með aðili að Íþrótta – og ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og UMFÍ.

Þetta er í fyrsta sinn sem íþróttabandalög fá inngöngu í UMFÍ en undirbúningur að þessu ferli hefur staðið yfir í tvo áratugi.

Tillaga sama efnis var felld árið 2017 á sambandsþingi UMFÍ.

Fulltrúar sambandsaðila UMFÍ samþykktu á sambandsþingi UMFÍ með nær öllum atkvæðum umsókn íþróttabandalaga að UMFÍ.

Við inngönguna fá íþróttabandalögin stöðu sambandsaðila innan UMFÍ.

„Hreyfingin verður öflugri við þetta. Við horfum til framtíðar. Nú getum við sameinað krafta okkar og orðið öflugri samtök en áður,‟ segir Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ í tilkynningu frá UMFÍ.

Ingvar Sverrisson, formaður ÍBR, segir þetta frábæra niðurstöðu á þinginu:

„Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að þetta sé leiðin að árangri. Ég hlakka mikið til að vinna með öllu þessu frábæra fólki í ungmennafélagshreyfingunni og læra af þeim. Saman getum við eflt íþrótta- og æskulýðsstarf í landinu.‟

UMFÍ verður öflugra landssamband

  • Þegar íþróttabandalög bætast við UMFÍ fá þau stöðu sambandsaðila á sama hátt og önnur íþróttahéruð landsins.
  • Hvert og eitt bandalag þarf að sækja um inngöngu og geta þau sem ekki vilja gera það staðið utan UMFÍ.
  • Félög UMFÍ með beina aðild munu áfram halda aðild sinni að UMFÍ en í gegnum íþróttabandalög á sama hátt og flest aðildarfélög UMFÍ í dag. Í þeim tilvikum þar sem íþróttabandalag hefur ekki sótt um aðild verður staða félags með beina aðild óbreytt.
  • Með tillögum vinnuhóps um aðild hafa hagsmunir núverandi sambandsaðila varðandi lottó og fjölda þingfulltrúa verið tryggðir.