Valdís Þóra keppir á úrtökumóti fyrir sterkustu atvinnumótaröð heims


Íþróttamaður Akraness, 2018, Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er stödd í Bandaríkjunum þessa stundina. Valdís Þóra mun á næstu dögum keppa á 2. stigi úrtökumótsins fyrir sterkustu atvinnumótaröð heims, LPGA.

Frá þessu er greint á golf.is.

Valdís Þóra komst í gegnum 1. stig úrtökumótsins fyrir LPGA í lok ágúst á þessu ári. Það er í fyrsta sinn sem hún kemst í gegnum 1. stig úrtökmótsins fyrir LPGA.

Þeir keppendur sem komast ekki áfram á lokaúrtökumótið ( Q-Series) hafa samt sem áður tryggt sér keppnisrétt á Symetra atvinnumótaröðinni, sem er sú næst sterkasta á eftir LPGA mótaröðinni.

Nánari upplýsingar um 2. stig úrtökumótsins er að finna hér:

Keppnin hefst mánudaginn 14. október og er keppt á Plantation Golf and Country Club í Bandaríkunum.

Keppnisvellirnir eru tveir og heitar þeir Bobcat og Panther.

Ólafía Þórunn og Valdís Þóra leika báðar fyrsta hringinn á Panther vellinum mánudaginn 14. október.

Valdís Þóra hefur leik kl. 13:17 að íslenskum tíma og Ólafía Þórunn hefur leik kl. 16:24.

Skor keppenda er uppfært hér:

Valdís Þóra komst í gegnum 1. stig úrtökumótsins sem fram fór í lok ágúst. Valdís Þóra endaði í 21.-36. sæti en alls reyndu 360 keppendur að komast í gegnum 1. stig úrtökumótsins.

Ólafía Þórunn var með keppnisrétt á Symetra atvinnumótaröðinni á þessu tímabili, auk þess sem hún var með takmarkaða þátttöku á sjálfri LPGA mótaröðinni. Hún fer því beint inn á 2. stig úrtökumótsins.

Lokaúrtökumót LPGA mótaraðarinnar, Q-Series, fer síðan fram á tímabilinu 21. okt-2. nóvember á Pinehurst golfvallasvæðinu í Norður-Karólínu.

Þar er keppt um 45 efstu sætin sem tryggja keppnisrétt á LPGA mótaröðinni keppnistímabilið 2019.

Þar verða leiknir 8 keppnishringir á tveimur vikum. Þeir kylfingar sem lenda í 20 efstu sætunum fá 100% keppnisrétt á LPGA en þeir sem enda í sætum 21-45 fá takmarkaðan keppnisrétt.