HEIMA-SKAGI fær 450.000 kr. styrk frá Akraneskaupstað


Eins og fram hefur komið stendur mikið til þann 1. nóvember á Akranesi þegar tónlistarhátíðin HEIMA-SKAGI fer fram í fyrsta sinn.

Bæjarráð Akraness fjallaði um tónlistarhátíðina á síðasta fundi sínum. Þar var erindi frá menningar – og safnanefnd um tónlistarhátíðina HEIMA-SKAGI tekið fyrir.

Á fundinum var samþykkt að styrkja tónlistarhátiðina samtals að fjárhæð kr 450.000.

Bæjarráð bendir forsvarsmönnum hátíðarinnar á að beina styrkbeiðni á árinu 2020 til Uppbyggingarsjóðs Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.

http://localhost:8888/skagafrettir/2019/10/08/ibuar-a-nedri-skaganum-med-opid-hus-a-tonlistarhatidinni-heima-skagi/