Jón Kristjánsson er nýr þjálfari Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi. Gengið var frá ráðningu hins þaulreynda þjálfara í kvöld.
Jón hefur mikla reynslu sem þjálfari . Hann þjálfað liði KF og Hamars þegar þau léku í 2. deild karla.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2019/10/73324301_2638376566250019_91716574179753984_o-1132x670.jpg)
Lið Kára lék í 2. deildinni á síðustu leiktíð og endaði í 10. sæti af alls 12 liðum á sínu öðru ári í þriðju efstu deild á Íslandi.
Jón hefur einnig þjálfað Skallagrím, Þrótt Vogu, ÍH og Reyni Sandgerði.
Þar að auki hefur Jón þjálfað meistaraflokks lið Vals og Fylkis í kvennaflokki.
Á síðustu leiktíð þjálfaði Jón lið Elliða sem fór undir hans stjórn úr 4. deild upp í 3. deild.
![](http://localhost:8888/skagafrettir/wp-content/uploads/2019/10/73324301_2638376566250019_91716574179753984_o-1-921x1024.jpg)