Guðmundur lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Leynis


Guðmundur Sigvaldason, sem hefur starfað sem framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis frá árinu 2013, hefur óskað eftir því að láta af störfum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leyni.

„Tíminn hjá Golfklúbbnum hefur verið afar gefandi og skemmtilegur og hefur verið gaman að vinna fyrir félagsmenn Leynis. Ég er þakklátur öllu því góða starfsfólki og samstarfsfólki sem ég hef unnið með og er stoltur af þeirri uppbyggingu klúbbsins sem átt hefur sér stað á minni vakt“ segir Guðmundur í tilkynningunni.

„Guðmundur hefur starfað fyrir Golfklúbbinn Leyni í sjö ár og verið lykilmaður í þeirri uppbyggingu og öfluga starfi sem unnið hefur verið hjá Leyni síðastliðin ár. Samstarfið við Guðmund hefur verið gott og hefur reynsla hans og þekking reynst klúbbnum gríðarlega vel á þessum uppbyggingartíma. Stjórn Leynis kann Guðmundi bestu þakkir fyrir störf hans fyrir klúbbinn og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi,“ segir Þórður Emil Ólafsson formaður Leynis.

Samkvæmt heimildum Skagafrétta verða talsverðar breytingar á stjórn Leynis á næsta aðalfundi félagsins. Þar ber hæst að Þórður Emil mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs sem formaður.