Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, 4. desember 2019.
Valdís Þóra er þessa stundina stödd í Afríku þar sem hún hefur leik á morgun, fimmtudag, á lokamóti LET Evrópumótaraðarinnar. Þetta kemur fram á vef Golfsambands Íslands.
Lokamót tímabilsins á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki fer fram 5.-8. desember í Kenía en það mót er jafnframt 16. mótið hjá Valdísi Þóru á þessu tímabili.
Skorið er uppfært hér á lokamótinu á LET Evrópumótaröðinni.
Hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á 8 mótum af alls 15. Besti árangur hennar er 5. sætið á þessu tímabili.
Valdís Þóra er sem stendur í 71. sæti stigalista LET Evrópumótaraðarinnar. Hún er í harðri baráttu um að halda keppnisrétti sínum á mótaröðinni en 70 efstu sætin tryggja öruggt sæti á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili.
Lokamótið eru því mikilvæg fyrir Valdísi Þóru hvað stöðu hennar á stigalistanum varðar.
Árangur Valdísar á LET á þessu ári er hér fyrir neðan.