Í langefsta sæti yfir vinsælustu fréttir ársins 2019 á skagafrettir.is var myndband sem sýnt var á Þorrablóti Skagamanna 2019.
Þar fór Ólafur Þórðarson, hinn eini sanni, á kostum í viðtali sem sett var upp fyrir blótið.
Myndbandið fór svo sannarlega á flug og stærstu fréttamiðlar landsins vitnuðu í skagafrettir.is í fréttaflutningi sínum frá blótinu.
Myndbandið fékk mörg þúsund heimsóknir á vef Skagafrétta og á youtube er áhorfið kom vel yfir 15.000.