Anna nýr skrifstofustjóri Akraneskirkju


Mikill áhugi var á starfi skrifstofustjóra Akraneskirkju sem auglýst var til umsóknar í lok nóvember s.l.

Alls sóttu 27 um starfið og sóknarnefnd Akraneskirkju vann með ráðgjafa frá Capacent við matsferlið og umsjón með ráðningarferlinu.

Sóknarnefnd Akraneskirkju komst að þeirri niðurstöðu að ráða Önnu Kristjánsdóttur sem skrifstofustjóra.

Í frétt á heimasíðu Akraneskirkju kemur eftirfarandi fram:

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Kristjánsdóttir hefur mikla reynslu af bókhaldi og hefur undanfarin ár unnið hjá Speli, bæði sem aðalbókari og síðasta ár sem framkvæmdastjóri. 

Hún hefur einnig mikla reynslu af þjónustu og samskiptum í gegnum störf sín hjá Slysavarnardeildinni Líf, þar sem hún hefur m.a. lokið ítarlegu námskeiði í sálrænni skyndihjálp. Anna hefur einnig verið virk í starfi innan kirkjunnar og þekkir vel til innviða hennar. Anna er búsett á Akranesi ásamt fjölskyldu sinni. Við bjóðum hana velkomna til starfa í kirkjunni um leið og við þökkum öðrum umsækjendum þann mikla áhuga sem starfinu var sýndur.