Feðgarnir Þórður og Stefán bætast í stóran hóp „A-landsliðsfeðga“ úr röðum ÍA


Skagamenn eiga stóran hóp leikmanna sem hafa leikið með A-landsliði karla og kvenna í gegnum tíðina. Jón Gunnlaugsson, sagnaritari og fyrrum leikmaður ÍA og landsliðsins, á ógrynni af skemmtilegri tölfræði um slíka hluti.

Í þeirri tölfræði kemur m.a. fram að Stefán Teitur Þórðarson er sá 82. í röðinni frá upphafi sem kemur úr röðum ÍA og leikur með A-landsliði.

Stefán Teitur lék sína fyrstu A-landsleiki þegar Ísland mætti Kanada og El Salvador í vináttuleikjum sem fram fóru í Bandaríkjunum.

Stefán Teitur er þriðji ættliðurinn úr föðurfjölskyldu sinni sem leikur A-landsleik. Langafi hans, Þórður Þórðarson, lék 18 leiki með A-landsliðinu á árunum 1951-1958. Hann skoraði alls 9 mörk í þessum 18 leikjum. Faðir Stefáns Teits, Þórður Þórðarson, lék einn leik sem markvörður með A-landsliðinu.

Nánar má lesa um þá sögu hér fyrir neðan.

http://localhost:8888/skagafrettir/2017/11/14/skagamenn-aberandi-a-lista-yfir-fedga-sem-hafa-leikid-a-landsleiki/

Alls hafa 63 karlar frá ÍA leikið með A-landsliðinu og 17 konur frá ÍA hafa leikið með A-landslið Íslands.

http://localhost:8888/skagafrettir/2020/01/20/stefan-og-tryggvi-i-byrjunarlidi-islands-i-1-0-sigri-gegn-el-salvador/

Leikmenn ÍA sem hafa leikið A-landsleik.

Karlar:

Ríkharður Jónsson.

Þórður Þórðarson.

Dagbjartur Hannesson.

Guðjón Finnbogason.

Pétur Georgsson.

Sveinn Teitsson.

Halldór Sigurbjörnsson.

Kristinn Gunnlaugsson.

Þórður Jónsson.

Helgi Daníelsson.

Helgi Björgvinsson.

Jón Leósson.

Ingvar Elísson.

Eyleifur Hafsteinsson.

Einar Guðleifsson.

Björn Lárusson.

Matthías Hallgrímsson.

Haraldur Sturlaugsson

Guðjón Guðmundsson.

Hörður K. Jóhannesson.

Jón Alfreðsson.

Þröstur Stefánsson.

Karl Þórðarson.

Teitur Þórðarson.

Árni Sveinsson.

Guðjón Þórðarson.

Jón Gunnlaugsson.

Sigurður Halldórsson.

Pétur Pétursson.

Kristinn Björnsson.

Heimir Guðmundsson.

Bjarni Sigurðsson.

Kristján B. Olgeirsson.

Ólafur Þórðarson.

Sigurður Jónsson.

Sigurður Lárusson.

Sveinbjörn Hákonarson.

Alexander Högnason.

Haraldur Ingólfsson.

Bjarki B. Gunnlaugsson.

Arnar B. Gunnlaugsson.

Árni Gautur Arason.

Gunnlaugur Jónsson.

Stefán Þór Þórðarson.

Þórður Guðjónsson.

Jóhannes Þór Harðarson.

Kristján Finnbogason.

Sigursteinn Gíslason.

Bjarni Guðjónsson.

Ólafur Adolfsson.

Þórður Þórðarson.

Grétar Rafn Steinsson.

Jóhannes K. Guðjónsson.

Ólafur Þór Gunnarsson.

Steinar Adolfsson.

Garðar B. Gunnlaugsson.

Baldur Aðalsteinsson.

Arnór Smárason.

Heimir Einarsson.

Björn B. Sigurðarson.

Tryggvi H. Haraldsson.

Arnór Sigurðsson.

Stefán Teitur Þórðarson

Konur:

Kristín Aðalsteinsdóttir.

Laufey Sigurðardóttir.

Ragnheiður Jónasdóttir.

Halldóra Gylfadóttir.

Karítas Jónsdóttir.

Ragna Lóa Stefánsdóttir.

Vala Úlfljótsdóttir.

Vanda Sigurgeirsdóttir.

Sigurlín Jónsdóttir.

Magnea Guðlaugsdóttir.

Guðlaug Jónsdóttir.

Jónína Víglundsdóttir.

Steindóra Steinsdóttir.

Helena Ólafsdóttir.

Ingibjörg H. Ólafsdóttir.

Laufey Jóhannsdóttir

Margrét Ákadóttir.

Helga Sjöfn Jóhannesdóttir

Hallbera G. Gísladóttir.