Stefán og Tryggvi í byrjunarliði Íslands í 1-0 sigri gegn El Salvador


Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson voru báðir í byrjunarliði A-landsliðs Íslands í knattspyrnu karla í nótt gegn El Salvador.

Um var að ræða vináttulandsleik sem fram fór í Los Angeles í Bandaríkjunum. Kjartan Henry Finnbogason skoraði eina mark leiksins.

Tryggvi Hrafn fór útaf um miðjan síðari hálfleik en Stefán Teitur fór útaf á 80. mínútu.

Stefán Teitur er að leika sína fyrstu A-landsleiki á ferlinum en hann er 82. leikmaðurinn úr röðum ÍA sem leikur með A-landslið í knatttspyrnu.

Hér fyrir neðan má sjá helstu atvikin úr leiknum í nótt.

Skagamenn eiga stóran hóp leikmanna sem hafa leikið með A-landsliði karla og kvenna í gegnum tíðina. Jón Gunnlaugsson, sagnaritari og fyrrum leikmaður ÍA og landsliðsins, á ógrynni af skemmtilegri tölfræði um slíka hluti.

Í þeirri tölfræði kemur m.a. fram að Stefán Teitur er sá 82. í röðinni frá upphafi sem kemur úr röðum ÍA og leikur með A-landsliði.

Alls hafa 63 karlar frá ÍA leikið með A-landsliðinu og 17 konur frá ÍA hafa leikið með A-landslið Íslands.

Leikmenn ÍA sem hafa leikið A-landsleik.

Karlar:

Ríkharður Jónsson.

Þórður Þórðarson.

Dagbjartur Hannesson.

Guðjón Finnbogason.

Pétur Georgsson.

Sveinn Teitsson.

Halldór Sigurbjörnsson.

Kristinn Gunnlaugsson.

Þórður Jónsson.

Helgi Daníelsson.

Helgi Björgvinsson.

Jón Leósson.

Ingvar Elísson.

Eyleifur Hafsteinsson.

Einar Guðleifsson.

Björn Lárusson.

Matthías Hallgrímsson.

Haraldur Sturlaugsson

Guðjón Guðmundsson.

Hörður K. Jóhannesson.

Jón Alfreðsson.

Þröstur Stefánsson.

Karl Þórðarson.

Teitur Þórðarson.

Árni Sveinsson.

Guðjón Þórðarson.

Jón Gunnlaugsson.

Sigurður Halldórsson.

Pétur Pétursson.

Kristinn Björnsson.

Heimir Guðmundsson.

Bjarni Sigurðsson.

Kristján B. Olgeirsson.

Ólafur Þórðarson.

Sigurður Jónsson.

Sigurður Lárusson.

Sveinbjörn Hákonarson.

Alexander Högnason.

Haraldur Ingólfsson.

Bjarki B. Gunnlaugsson.

Arnar B. Gunnlaugsson.

Árni Gautur Arason.

Gunnlaugur Jónsson.

Stefán Þór Þórðarson.

Þórður Guðjónsson.

Jóhannes Þór Harðarson.

Kristján Finnbogason.

Sigursteinn Gíslason.

Bjarni Guðjónsson.

Ólafur Adolfsson.

Þórður Þórðarson.

Grétar Rafn Steinsson.

Jóhannes K. Guðjónsson.

Ólafur Þór Gunnarsson.

Steinar Adolfsson.

Garðar B. Gunnlaugsson.

Baldur Aðalsteinsson.

Arnór Smárason.

Heimir Einarsson.

Björn B. Sigurðarson.

Tryggvi H. Haraldsson.

Arnór Sigurðsson.

Stefán Teitur Þórðarson

Konur:

Kristín Aðalsteinsdóttir.

Laufey Sigurðardóttir.

Ragnheiður Jónasdóttir.

Halldóra Gylfadóttir.

Karítas Jónsdóttir.

Ragna Lóa Stefánsdóttir.

Vala Úlfljótsdóttir.

Vanda Sigurgeirsdóttir.

Sigurlín Jónsdóttir.

Magnea Guðlaugsdóttir.

Guðlaug Jónsdóttir.

Jónína Víglundsdóttir.

Steindóra Steinsdóttir.

Helena Ólafsdóttir.

Ingibjörg H. Ólafsdóttir.

Laufey Jóhannsdóttir

Margrét Ákadóttir.

Helga Sjöfn Jóhannesdóttir

Hallbera G. Gísladóttir.