Það eru bjartir tímar framundan hjá Fimleikafélagi Akraness. Nýtt fimleikahús er í byggingu við Vesturgötu og nýverið voru gerðir tímamótasamningar við iðkendur í meistaraflokki félagsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkir samningar eru gerðir hjá fimleikafélaginu.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2020/02/IMG_4879-1132x670.jpeg)
Um er að ræða iðkendur sem eru 18 ára og eldri.
„Félagið er virkilega stolt að því að hafa þessar ungu og efnilegu stelpur í okkar hóp og með þennan áfanga í sögu félagsins. Í þessum hópi eru Aþena Ósk Eiríksdóttir (f. 2001), Harpa Rós Bjarkadóttir (f. 1997), Marín Birta Sveinbjörnsdóttir ( f. 2001), Sóley Brynjarsdóttir (f. 2001), Sylvía Mist Bjarnadóttir (f. 1997), Valdís Eva Ingadóttir (f. 2002) og Ylfa Claxton (f. 2001),— segir í tilkynningu frá félaginu.
Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir formaður FIMA og Þórdís Þráinsdóttir yfirþjálfari FIMA skrifuðu undir samninginn fyrir hönd félagsins.
Laugardaginn 15 febrúar keppir meistaraflokkur á GK mótinu á Selfossi, en Fimleikafélag Akraness, ÍA, er eitt af þremur félögum landsins sem á meistaraflokk í A deild.