Valdís Þóra náði frábærum árangri í Suður-Afríku




Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, náði frábærum árangri á sterkustu atvinnumótaröð kvenna í Evrópu í golfi á móti sem lauk í dag í Suður-Afríku.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi náði sínum þriðja besta árangri á LET Evrópumótaröðinni á móti sem fram fór í Suður-Afríku.

Valdís Þóra var í baráttunni um sigurinn á lokahringnum en hún endaði í 7. sæti. Hún lék hringina þrjá á -2 (72-70-72) eða 214 höggum. Alice Hewson frá Englandi sigraði á -5 samtals (70-70-71).

Valdís Þóra hefur tvívegis náð þriðja sæti á LET Evrópumótaröðinni og einu sinni hefur hún endað í fimmta sæti.

Fyrir árangurinn fékk Valdís Þóra rúmlega 4.500 Evrur eða rétt rúmlega 700.000 kr. Hún er í 24. sæti á stigalista LET Evrópumótaraðarinnar að loknum þremur mótum.

Valdís Þóra hóf keppnistímabilið í Ástralíu á LET Evrópumótaröðinni þar sem hún keppti á tveimur mótum í febrúar. Besti árangur hennar á var 21. sæti í Ástralíu.

Smelltu hér fyrir nánari úrslit.