Nýjustu Covid-19 tölurnar frá Vesturlandi – miðvikudagur 13. maí


Eitt nýtt Covid-19 smit hefur greinst á Vesturlandi undanfarinn sólarhring, samkvæmt nýjum tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu. Er þetta fyrsta smitið í landshlutanum síðan á mánudaginn í síðustu viku, 4. maí.

Covid-19 smit greindist á Vesturlandi á síðasta sólarhring samkvæmt upplýsingum sem Lögreglan á Vesturlandi birti í dag.

Smitið greindist á svæði HVE (Akranes/Hvalfjarðarsveit) og samkvæmt heimildum Skessuhorns hafði sá sem greindist verið í sóttkví.

Alls hafa 43 smit verið greind á Vesturlandi frá því að greining á Covid-19 veirunni hófst. Aðeins 2 eru í einangrun á Vesturlandi -og eru þeir báðir á Akranesi.

Eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan hefur ásatandið lagast mikið á Vesturlandi á undanförnum vikum.