Íbúðaverð hefur hækkað umtalsvert á Akranesi en mest í Árborg

Fasteignaverð á Akranesi hefur hækkað um 20% á mili ára á þriðja ársfjórðungi samkvæmt athugun Hagfræðideildar Landsbankans – þar sem að stuðst var við gögn úr Verðsjá Þjóðskrár Íslands. Íbúðaverð í þéttbýliskjörnum á landinu öllu hefur hækkað á bilinu 9-36&, mest á höfuðborgarsvæðinu.

Mesta hækkunin er í Árborg eða sem nemur 36% og næstmest á Akranesi eða 20%. Í könnunni kemur einnig fram að frá árinu 2015 hafi íbúðaverð hækkað mest í Árborg, þar á eftir í Reykjanesbæ og Akranes er í þriðja sæti á þessum lista.

„Þrátt fyrir þessar hækkanir er fermetraverð íbúða enn talsvert lægra í kjörnum utan höfuðborgarsvæðisins, á bilinu 24-37% lægra. Minnstu munar í Árborg þar sem fermetraverð er að jafnaði 24% lægra en á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir ári síðan var fermetraverðið hins vegar 34% lægra, áður en íbúðaverð í Árborg tók að hækka hraðar en á höfuðborgarsvæðinu. Munurinn á verðlagi eftir svæðunum fer því minnkandi þó enn sé talsvert ódýrara að kaupa húsnæði í Árborg samanborið við höfuðborgarsvæðið,“ segir í Hagsjánni.

Nánari upplýsingar hér:

Akranes 2021. Mynd/Gísli G.