Nýjustu Covid-19 tölurnar á Vesturlandi – umtalsverð fjölgun smita á Akranesi

Umtalsverð fjölgun Covid-19 smita er á Vesturlandi samkvæmt uppfærðum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi.

Á Akranesi eru 25 einstaklingar í einangrun með Covid-19 smit og greindust því 14 ný smit í gær. Í Borgarnesi greindust 6 einstaklingar með Covid-19 smit.

Einstaklingum í sóttkví fjölgar því umtalsvert á Akranesi í kjölfarið en alls eru 63 í sóttkví og bættust 52 í þann hóp í gær.

Í tveimur þéttbýliskjörnum á Vesturlandi er ekkert smit til staðar eins og sjá má á þessum töflum hér fyrir neðan frá Lögreglunni á Vesturlandi.