Þaulreynt sundfólk úr röðum ÍA tók þátt í opnunarathöfn „Syndum“ landsátakinu

Syndum, landsátak í sundi hófst í gær með formlegum hætti í Laugardalslaug. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til að hreyfa sig með því að synda saman  hringinn í kringum Ísland.  Landsmenn skrá sig og metrana sem þeir synda á forsíðu www.syndum.is  Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt.

Þaulreynt sundfólk á besta aldri úr röðum ÍA tók þátt í opnunarathöfninni. Við það tækifæri héldu Andri Stefánsson, starfandi framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Björn Sigurðsson, formaður Sundsambands Íslands stuttar ræður.

UM VERKEFNIÐ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 28. nóvember 2021. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.

Sund er heilsubætandi og góð leið til að styrkja hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er jafnframt skemmtileg tómstundariðja. Þetta átak er framhald af Íþróttaviku Evrópu sem tókst einkar vel í ár. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í „Mínar skráningar“. Einfalt er að   velja   sér   notendanafn   og   lykilorð   og skrá   síðan sínar   sundvegalengdir. Þeir   sem eiga notendanafn í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt von á að verða  dregnir  út  og vinna veglega  vinninga. Á  heimasíðu Syndum, www.syndum.is, eru allar nánari upplýsingar um verkefnið auk ýmiss  annars fróðleiks og upplýsinga um sundlaugar landsins.