Kristrún, Björn og Sigrún komu FVA í beina útsendingu í sjónvarpinu í „Gettu betur“

Keppnislið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er á mikilli siglingu í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur.

Kristrún Bára Guðjónsdóttir, Björn Viktor Viktorsson og Sigrún Freyja Hrannarsdóttir skipa keppnislið FVA.

FVA keppti í kvöld gegn Fjölbrautaskólanum á NV-landi sem er staðsettur á Sauðárkróki.

FVA sýndi mikla yfiburði í 16-liða úrslitum og sigraði 28-9.

Áður höfðu þau sigrað Fjölbrautaskóla Suðurnesja nokkuð örugglega, 24-17 í fyrstu umferð.

Þar með tryggði FVA sér sæti í 8-liða úrslitum sem fram fara í beinni útsendingu í sjónvarpinu hjá RÚV.