Frábær árangur hjá sundfólki ÍA á ÍM 50

Keppendur úr röðum ÍA náðu frábærum árangri á Íslandsmótinu í 50 metra laug sem fram fór um s.l. helgi í Laugardalslaug.

ÍM 50 er eitt mikilvægasta mót ársins á Íslandi og það mót þar sem flestir stefna á að ná sínum besta árangri.

Besta sundfólk landsins tók þátt og uppskeran var góð hjá Skagaliðinu, tvö silfur, tvö brons, þrjú landsliðslágmörk og fjögur Akranesmet. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sundfélaginu.

Einar Margeir Ágústsson vann silfur í bæði 50m bringusundi og 200m bringusundi og er kominn með lágmörk á Evrópumeistaramót unglinga sem fer fram í Rúmeníu í sumar.

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir vann brons í 100m skriðsundi og er komin með lágmörk í unglingalandsliðið.

Kristján Magnússon vann silfur í 200m skriðsundi og brons í 50m skriðsundi og er kominn með lágmörk í unglingalandsliðið.

Einar Margeir Ágústsson fékk silfur í 50 m bringusundi á tímanum 29,17 sek. sem er bæði Akranesmet og undir lágmarki á EM unglinga sem fer fram í Rúmeníu í sumar.

Þessi tími er næst besti tími sem hefur verið syntur á Íslandi í piltaflokki.

Einungis sigurvegari greinarinnar, Snorri frá SH, hefur synt þessa grein hraðar en Snorri synti á 29,08 sek. Einar átti sjálfur Akranesmetið sem hann bætti með því að synda á 29,17 sek. en gamla metið var 29,92 sek. frá því í janúar á þessu ári.

Í 200 m. bringusundi fékk Einar silfur á tímanum 2.26,21 mín. sem er nýtt Akranesmet. Gamla metið var 2.28,33 mín sem Hrafn Traustason setti árið 2008.
Einar varð fjórði í 100 m. bringusundi þar sem hann synti við sinn besta tíma.

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir fékk brons í 100 m skriðsundi á tímanum 59,55 sek.
Í 50m skriðsundi synti hún á 27,55 sek. og endaði í 5. sæti. Báðir þessir tímar eru undir lágmörkum hjá unglingalandsliði SSÍ. Bjartey varð fjórða í 200 m skriðsundi á tímanum 2.12,42 mín. sem er bæting um 3,5 sek.

Kristján Magnússon vann silfur í 200 m skriðsundi á tímanum 2.02,79 mín. eftir mjög gott sund. Hann var í sjötta sæti eftir 150 m en átti mest inni fyrir lokasprettinn síðustu 50 metrana og synti sig upp í annað sætið. Vel útfært sund.Í 50m skriðsundi endaði Kristján í 3. sæti á tímanum 24,71 sek. sem var undir lágmarki í unglingalandslið og setti um leið nýtt Akranesmet í piltaflokki. Gamla metið átti Einar Margeir, 25,36 sek.

Guðbjarni Sigþórsson átti góða helgi og bæti sig í fjórum af fimm greinum. Hann varð í 8. sæti í bæði 100m flugsundi á 1.06,37 mín. og 200m skriðsundi á 2.06,49 mín.

Ragnheiður Karen Ólafsdóttir synti vel yfir helgina og var við sína bestu tíma sem er mjög góður árangur miðað við að hún hefur strítt við meiðsli síðasta mánuðinn.

Ingibjörg Svava Magnúsardóttir bæti sig í 50m baksundi, og var mjög nálægt sínum bestu tímum í öllum sundum.

Helga Rós Ingimarsdóttir sem synti í boðsundi bætti sig um næstum því sekúndu í 100m baksundi sem er góður árangur á fyrsta Íslandsmeistaramótinu.

Veikindi settu strik í reikninginn fyrir sundmenn frá Akranesi en nokkrir hafa legið mikið veikir með flensu; Sindri Andreas Bjarnason synti 100 m skriðsund og var aðeins frá sínum besta tíma. Sindri þurfti síðan að draga sig úr keppni vegna veikinda.

Alex Benjamín Bjarnason synti við sinn besta tíma í 50m skriðsundi en þurfti líka að draga sig úr keppni vegna veikinda.

Enrique Snær Llorens náði sér ekki á strik eftir flensuna og þurfti því miður að draga sig úr mótinu. Karen Káradóttir var í sömu stöðu og margir aðrir og gat því miður ekki keppt á ÍM50 vegna veikinda.
Veikindin ollu því einnig að SA þurfti að draga sig úr keppni í flestum boðsundum helgarinnar.

Í 4x100m skriðsundi varð strákasveitin okkar í 4. sæti á tímanum 3.44,98 mín. sem er nýtt Akranesmet. Sveitina skipuðu þeir Einar Margeir, Sindri Andreas, Guðbjarni og Kristján. Gamla metið var 3.45,86 mín. frá árinu 2011 og það áttu þeir Ágúst Júlíusson, Jón Þór Hallgrímsson, Birgir Viktor Hannesson og Guðmundur Brynjar Júlíusson.

Stelpurnar urðu í 6. sæti í 4×100 fjórsundi. Þar syntu Helga Rós, Ragnheiður Karen, Guðbjörg Bjartey og Ingibjörg Svava.