Eitt vinsælasta og stórbrotnasta tónverk tónbókmenntanna Carmina Burana eftir Carl Orff verður flutt í Norðurljósasal Hörpu föstudaginn 16. maí nk. kl.. 20.

Stjórnandi flutningsins er Hilmar Örn Agnarsson organisti og kórstjóri  í Garða – og Saurbæjarprestakalli. Hann kemur þar fram með kórana sína Söngfjelagið og Kór Akraneskirkju ásamt einsöngvurunum Herdísi Önnu Jónsdóttur sópran, Benedikt Kristjánssyni tenór og Hrólfi Sæmundssyni baritón. Einnig kemur fram nýstofnaður Barnakór Söngfjelagsins og danshópur undir stjórn Ásrúnar Magnúsdóttur.

Listræn ráðgjöf er í höndum Bjarna Thors Kristinssonar.

Hljóðfæraleik annast píanóleikararnir Helga Bryndís Magnúsdóttir og Liam Kaplan ásamt slagverkssveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Frank Aarnik.

Carmina Burana er eitt mest flutta tónverk tónbókmenntanna. Verkið er fjörugt og fyndið, með fjörugum rythmum og húmorískum textum. 

Á tónleikunum verður sú sérstaða að hluti verksins er fluttur í fyrsta sinn á Íslandi með nýjum íslenskum textum Hjörleifs Hjartarsonar. Einnig verður flutt upprunaleg útgáfa verksins sem er fyrir kór, tvo flygla, sex slagverksleikara, þrjá einsöngvara og barnakór. Fjöldi flytjenda í báðum kórum er um 120 manns auk 20 manna barnakórs. Aðstoðarkórstjóri er Iveta Licha.

Carmina Burana í Norðurljósasal Hörpu föstudaginn 16. maí kl. 20.

Flytjendur:

Söngfjelagið, Kór Akraneskirkju og Barnakór Söngfjelagsins,

Herdís Anna Jónasdóttir sópran,

Benedikt Kristjánsson tenór

Hrólfur Sæmundsson baritón

Stjórnandi: Hilmar Örn Agnarsson

Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó

Liam Kaplan píanó

Slagverkssveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands

Listræn ráðgjöf: Bjarni Thor Kristinsson

Danshópur undir stjórn Ásrúnar Magnúsdóttur

Miðasala á Tix – smelltu hér: 

 

  • Skagafréttir hafa á undanförnum átta árum beint kastljósinu að mannlífinu á Akranesi og flutt mörg þúsund fréttir af Skagamönnum nær og fjær.
  • Bæjarfréttamiðill sem er opinn fyrir alla er ekki sjálfsagður hlutur.
  • Hefur þú tök á því að styðja við bakið á fréttamiðlinum okkar?