Aðsend grein:  

Nú þegar dregur að lokum kosningabaráttu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Hvalfjarðarsveit er ekki úr vegi að þakka íbúum fyrir þær góðu undirtektir sem framboð Íbúahreyfingarinnar hefur fengið. Framboð Íbúahreyfingarinnar er sprottið úr frjóum jarðvegi almennings í sveitinni. Almennings sem þótt hefur sem rödd og áhrif hins almenna borgara mættu koma bæði fyrr og skýrar fram í umræðum og ákvörðunum í sveitarstjórn. Að ákvarðanir sveitarstjórnar hverju sinni taki með ákveðnari og skýrari hætti mið af hagsmunum íbúanna. Að hagsmunir íbúa séu fyrst og síðast hafðir að leiðarljósi. Það hefur því miður ekki verið sjálfgefið. 

Með þeim orðum er ég ekki að kasta rýrð á núverandi eða fyrrverandi sveitarstjórnir heldur að benda á hið augljósa að oftar en ekki hefur sveitarstjórn og almenningur í sveitarfélaginu verið undir miklum utanaðkomandi þrýstingi um að ráðist verði í uppbyggingu í sveitarfélaginu sem á stundum ekki hefur verið áhugi á að rísi annars staðar. Uppbyggingu á grunni tæknilausna sem á tíðum hafa ekki verið fullþróaðar og allra síst legið fyrir hvaða áhrif þær hafi á fólk, náttúru og umhverfi. Þeim vinnubrögðum viljum við breyta fáum við til þess traust frá íbúum. Ekki til þess að koma í veg fyrir eða tefja uppbyggingu í sveitarfélaginu. Þvert á móti. Með auknu íbúalýðræði má koma í veg fyrir tortryggni og deilur sem oft á tíðum tefja fyrir hinum bestu málum. Slíkar sögur þekkjast of margar. Hitt er augljóst í okkar huga að samstarf um uppbyggingu í sveitarfélaginu má ekki einungis vera bundið við risavaxin og áhættusöm verkefni, hvort sem horft er til mannlífs, umhverfis eða fjárhags. Við þurfum að breikka sjóndeildarhringinn og horfa á tækifæri sem víðast í okkar kæru sveit. 

Hvalfjarðarsveit státar af miklum náttúruperlum, fjölskrúðugu lífríki og fögru mannlífi. Íbúahreyfingin vill með afgerandi hætti breyta ásýnd sveitarfélagsins á næstu árum sem efla mun og styrkja stoðir ferðaþjónustu. Við höfum alla burði til þess að breytast úr svæði sem flestir landsmenn keyra í gegn á augabragði í vinsælan áfangastað þar sem rík menning og náttúrufegurð fá að njóta sín. Til að svo megi verða þarf kjark og hugarfarsbreytingu ekki síst hjá sveitarstjórn. 

Íbúahreyfingin mun berjast fyrir hraðari uppbyggingu samgangna innan sveitar sem utan þar með talið lagningu Sundabrautar. Sú framkvæmd ein kallar á mikinn og vandaðan undirbúning, ekki síst í skipulagsmálum. Þar munum við eins og í öðrum málum og hafi hagsmuni allra íbúa að leiðarljósi og tryggja þannig þá fjölbreytni í byggð sem Hvalfjarðarsveit hefur löngum státað sig af. 

Íbúahreyfingin mun í störfum sínum nálgast íbúana, fyrirtæki og nágrannasveitarfélög af virðingu og hlusta, vega og meta öll sjónarmið og tryggja um leið jafnræði allra við ákvarðanatöku. Leikreglur séu skýrar og tryggt að allir sitji við sama borð. Þannig farnast okkur best. 

Glíma sveitarfélaga og ríkis um skiptingu skatttekna borgaranna og framgang einstakra verkefna er alkunn. Þar hefur hlutur sveitarfélaganna oft verið fyrir borð borinn eftir samninga samkvæmt þokukenndum pólitískum reglum sem stjórnmálaflokkarnir hafa samið fyrir sitt fólk. Þessu þarf að breyta. Frambjóðendur Íbúahreyfingarinnar koma ekki með að starfi sínu neina pólitíska hagsmuni úr fortíðinni heldur geta einhent sér í baráttu með hagsmuni samborgara sinna að leiðarljósi. 

Eins og ég nefndi í upphafi er framboð Íbúahreyfingarinnar sprottið úr frjórri grasrót hins almenna íbúa sveitarfélagsins þar sem krafa er gerð um víðsýni og aukið gagnsæi. 

Það er hins vegar kjósenda að tryggja uppskeru úr hinum frjóa jarðvegi. Það gerist einungis með því að greiða Í-listanum atkvæði á laugardaginn. Þannig tryggjum við ennþá betri byggð og mannlíf í Hvalfjarðarsveit. 

Þóra Margrét Júlíusdóttir: 

Höfundur skipar 1.sæti á lista Íbúahreyfingarinnar.