Angela Árnadóttir myndlistarkennari í Fjölbrautaskóla Vesturlands var í dag útnefnd sem bæjarlistamaður Akraness fyrir árið 2026.

Ragnar Baldvin Sæmundsson forseti bæjarstjórnar Akraness tilkynnti um valið á Akratorgi í dag þar sem að fram fór hátíð vegna þjóðhátíðardagsins 17. júní.

Í tilkynningu frá Akraneskaupstaða kemur eftirfarandi fram:

Angela fæddist í Reykjavík árið 1988. Að grunnskóla loknum hóf hún nám í myndlist við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.

Samhliða framhaldsskólanámi lauk hún prófi í klassískum listdansi frá Listdansskóla Íslands og hélt síðan til Kaupmannahafnar þar sem hún sótti frekara nám við Konunglega danska ballettskólann.

Síðar hóf Angela nám við Akademie für Malerei í Berlín undir leiðsögn prófessors Ute Wöllmann. Þar tók hún einnig þátt í vikulegum fyrirlestrum og vinnustofum á hennar vegum. Á árunum 2013–2014 stundaði hún jafnframt nám í þýsku og þýskri menningarsögu við deild erlendra tungumála við Freie Universität Berlin. Árið 2019 tók Angela þátt í samsýningum í Wiesbaden, Toulouse, Konstanz, Kaupmannahöfn og Luxembourg.

Meðfram kennslu við Grundaskóla á Akranesi lauk Angela MT-gráðu í listgreinakennslu frá Háskóla Íslands.

Angela hefur staðið fyrir fjölmörgum skapandi vinnustofum og verkefnum á listasöfnum og menningarstofnunum í Reykjavík. Þar má meðal annars nefna vinnustofuna Geometrískar Halloweenhallir, sem sett var upp í Gerðarsafni í Kópavogi á vegum Háskólans og hlaut afar góðar viðtökur. Einnig vann hún verkefnið Óður til tómata, sem var sett upp í listgreinahúsi Háskólans í Skipholti undir merkjum Barnamenningarhátíðar Reykjavíkur og fékk mikið lof.

Sumarið 2023 hélt Angela einkasýningu í Akranesvita, dagana 10. júní til 30. júlí. Árið 2025 setti hún upp sýninguna „Olíubrák; Ljóðstafir kvenna í olíu“ í Bárunni á Akranesi sem hluta af Vökudögum, auk þess sem hún sýndi þessa sömu sýningu í Hótel Skálholti í tengslum við 50 ára afmæli Sumartónleikanna í Skálholti. Sýningin var styrkt af Akraneskaupstað og SSV. Verkefnið er óður til óþekktra skáldkvenna Íslands.

Angela hefur séð um barnastarf á sumartónleikunum í Skálholti síðan 2023, og hefur hannað mikinn fjölda af smiðjum, og einnig söngleik um ,,Guttavísur” fyrir tvo leikara og strengjakvartett, þar sem hún er bæði sögumaður og söngkona. Angela vinnur nú að því að skrifa og myndskreyta barnabók sem mun heita ,,Bongoló” og gera leiksýningu úr bókinni í samstarfi við Reykjavík-Early tónlistarhátíðina í Hörpu.

Angela hefur starfað sem myndlistarkennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands síðustu tvö ár og hefur á þeim tíma haft veruleg áhrif á þróun og eflingu greinarinnar innan skólans. Með nemendum sínum hefur hún tekið þátt í fjölmörgum verkefnum og keppnum með góðum árangri. Þar má nefna 3. sæti í keppninni Umhverfisfréttafólk á vegum Landverndar og 1. sæti í keppni Kennarasambands Íslands fyrir kennsluverkefni á sviði jafnréttismála.

Síðan Angela flutti búferlum á Akranes árið 2021 hefur hún kennt myndlist í Grundaskóla, samið og leikstýrt jólaleikriti í Grundaskóla, kennt þýsku, margmiðlun, listasögu, ljósmyndun og myndlist í Fjölbrautaskólanum, og haldið tvær myndlistasýningar.

Angela er afar vel að þessum verðlaunum komin og við vonum að þessi fjölhæfa listakona haldi áfram að lífga upp á bæinn með sinni einstöku nærveru og listsköpun.