Bjarni Skúli Ketilsson, myndlistarmaður, hefur á undanförnum árum skreytt ýmis mannvirki á Akranesi með frábærum hætti.

„Baski“ er búsettur í Hollandi en hann er fæddur árið 1966 og ólst upp á Akranesi. Árið 2019 var hann útnefndur sem bæjarlistamaður Akraness. 

Nýverið lauk hann við málverk sem útgerðarmaðurinn Eymar Einarsson óskaði eftir – en bátur Eymars, hinn öflugi Ebbi AK 37, var eitt af helstu kennileitum í útgerðinni á Akranesi í marga áratugi.   

Myndin er á vegg á iðnaðarhúsnæði sem er staðsett neðst á Vesturgötu.