Rakel Pálsdóttir og Arnar Jónsson halda áfram að setja skemmtilegar „ábreiður“ af þekktum lögum út á veraldarvefinn.
Nýjasta afurð þeirra er „Cant help falling in love“ og má hlusta á lagið hér fyrir neðan.
„Can’t Help Falling in Love“ var samið árið 1961 og var sungið af hinum eina sanna Elvis Presley á plötunni Blue Hawaii. Höfundar lagsins eru Hugo Peretti, Luigi Creatore og George David Weiss.
Rakel á ættir að rekja á Akranes, hefur látið mikið að sér kveða á tónlistarsviðinu á undanförnum misserum.
Rakel hefur m.a. tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins og vakið þar athygli.
Rakel hefur m.a. sungið með Arnari Jónssyni.
Það samstarf er svo sannarlega að virka eins og sjá má á þessum myndböndum sem þau hafa sett saman og birt á fésbókarsíðu sinni.
Ættartréð:
Foreldrar hennar eru Páll Halldór Sigvaldason og Unnur Sigurðardóttir.
Rakel á einn bróðir en hann heitir Flosi Pálsson.
Hér má sjá myndbönd við lögin sem Rakel og Arnar hafa flutt í Söngvakeppninni á undanförnum árum.
http://localhost:8888/skagafrettir/2017/02/03/skagakonan-rakel-fer-a-kostum-i-songvakeppni-sjonvarpsins/
http://localhost:8888/skagafrettir/2018/02/07/myndband-rakel-syngur-lagid-til-min-i-songvakeppninni/
Auglýsing
Auglýsing