Fjórir leikmenn úr röðum ÍA eru í U-17 ára landsliði karla sem hóf keppni í dag í milliriðli undankeppni EM.
Skagamaðurinn Jón Gísli Eyland Gíslason skoraði fyrir Íslands í 2-1 sigri liðsins gegn Slóveníu. Jón Gísli, sem gekk í raðir ÍA frá Tindastóli í vetur, lagði upp fyrra mark Íslands sem Davíð Snær Jóhannsson skoraði.
Oliver Stefánsson var fyrirliði Íslands og Ísak Bergmann Jóhannesson var einnig í byrjunarliði Íslands en þeir leika báðir með Norrköping í Svíþjóð.
Í aftari röð er Jón Gísli nr. 6 á myndinni, Oliver er nr. 4 og Ísak Bergmann er nr. 8 fyrir miðju í neðri röð.
Hákon Arnar Haraldsson, sem leikur með ÍA, líkt og Jón Gísli var í hópnum í dag en kom ekki við sögu.
Með sigrinum fór Ísland upp í toppsæti riðilsins þar sem heimamenn í Þýskalandi og Hvíta-Rússland skildu jöfn fyrr í dag, 1:1.
Keflvíkingurinn Davíð Snær Jóhannsson skoraði fyrra mark Íslands strax á áttundu mínútu eftir undirbúning hjá Jóni Gísla Eyland Gíslasyni, sem gekk í raðir ÍA frá Tindastóli um áramótin.
Efsta lið riðilsins fer í lokakeppni EM í Dublin í maí.
Ísland mætir Þýskalandi í öðrum leik sínum á föstudaginn og er hægt að fylgjast með leiknum í beinni á vef knattspyrnusambands Þýskalands.
Auglýsing
Auglýsing