Fjórir Skagamenn tóku þátt í miklu ævintýri með U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu karla.
Liðið tryggði sér sæti í úrslitum bestu liða Evrópu í úrslitakeppni EM sem fram fer í maí á þessu ári.
Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði tvö fyrstu mörk Íslands í 4-1 sigri liðsins í gær gegn Hvít-Rússum í lokaumferð undankeppni EM.
Mörkin úr leiknum eru hér fyrir neðan.
Fjórir Skagamenn voru í þessu liði, Ísak Bergmann og Oliver Stefánsson sem leika báðir með Norrköping í Svíþjóð – en Oliver var fyrirliði Íslands í keppninni.
Jón Gísli Eyfjörð Gíslason var í byrjunarliðinu í öllum þremur leikjunum líkt og Ísak og Oliver. Jón Gísli kom til ÍA frá Tindastóli í vetur. Hákon Arnar Haraldsson er fjórði Skagamaðurinn í þessu liði en hann en hann kom inná sem varamaður í flestum leikjum liðsins.
Lokakeppni fer fram í Dublin dagana 3.-19. maí næstkomandi. Dregið verður í riðla 4. apríl í Dublin.
Auglýsing
Auglýsing