Myndasyrpa: Svona er stemningin á Lopapeysunni – spennan magnast fyrir partý ársins!


Skagamenn eru í óða önn að undirbúa eina stærstu veislu ársins á Írskum dögum sem fram fara dagana 5.-7. júlí.

Að venju verður risastór tónlistarhátíð á sjálfu Lopapeysballinu laugardaginn 6. júlí. Og tónlistaratriðin sem þar verða í boði eru úr efstu hillu líkt og undanfarin ár.

Hér getur þú keypt miða á Lopapeysuna: -Smelltu á myndina

  • Birgitta Haukdal
  • Club Dub
  • Herra Hnetusmjör
  • Stefán Hilmarsson
  • Blaz Roca
  • Albatross
  • Jónsi
  • Sverrir Bergmann
  • Ingó Veðurguð
  • Helgi Björnsson
  • Jón Jónsson
  • Friðrik Dór
  • Dj Red
  • Og hinir einu sönnu Papar.

Hér fyrir neðan má sjá myndasyrpu frá Lopapeysunni í fyrra en það var Mummi Lú tók myndirnar.