Öflug viðbragðsáætlun í Elkem og snör handtök Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar komu í veg fyrir stórbruna í verksmiðjunni við Grundatanga snemma í morgun.
„Allir eru heilir, og það er aðalatriðið,“ segir Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem á Íslandi í samtali við mbl.is.
Einar bætir því við að óvíst er hvaða áhrif þetta atviki hafi á starfsemi verksmiðjunnar.
Eldurinn kom upp á 4. hæð um kl. 6 í morgun, í skauti í einum af þremur ofnum Elkem.
Þráinn Ólafsson, slökkviliðsstjóri slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar segir í samtali við mbl.is að hátt í 30 manna lið slökkviliðsmanna hafi verið á staðnum. Vel hafi gengið að ná tökum á eldinum.