Haukur Þórisson gerði sér lítið fyrir og sló draumahöggið þann 25. maí á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni.
Haukur fór holu í höggi á 18. braut vallarins sem er par 3 hola.

Þetta er frábær byrjun á tímabilinu hjá Hauki en samkvæmt tölfræði á vef Einherjaklúbbsins er þetta í annað sinn sem Haukur nýtir smiðsaugað til hins ítrasta þegar kemur að því að miða.
Haukur fór holu í höggi þann 21. júní árið 2010 á 3. holu Garðavallar.
Hann er því hálfnaður með það verkefni að slá draumahöggið á öllum par 3 holum Garðavallar – en hann á eftir að slá slík högg á 8. og 14. braut.
Á hverju ári eru um 150.000 draumahögg slegin á heimsvísu. Allir kylfingar hafa látið sig dreyma um að fara holu í höggi en hverjar eru líkurnar á því að slíkt gerist?
12.500 – Meðalkylfingur þarf 12.500 tilraunir til þess að ná því að fara holu í höggi.
5.000 – Lágforgjafarkylfingur þarf um 5.000 tilraunir til þess að slá boltann ofan í holuna í teighögginu.
2.500 – Atvinnukylfingar þurfa aðeins færri tilraunir, eða um 2.500, til þess að sjá boltann detta ofaní holuna eftir upphafshöggið.
200 ára biðtími – Meðalkylfingur þarf 200 ár til þess að ná draumahögginu en þeir kylfingar sem leika 75 hringi að meðaltali á ári þurfa aðeins að bíða í 30 ár eftir að ná því að fara holu í höggi.
Á hvaða vikudegi eru mestar líkur á því að fara holu í höggi? – Jú, það er á þriðjudögum, samkvæmt tölfræðisamantekt á heimsvísu.
Ragnar Einarsson er yngsti íslenski kylfingurinn sem hefur farið holu í höggi. Hann var sex ára árið 1994 þegar hann fór holu í höggi. Arnar T. Sigþórsson er sá elsti sem hefur afrekað að fara holu í höggi af íslenskum kylfingum. Hann var 98 ára gamall árið 1985 þegar hann sló draumahöggið.