Eins og fram hefur komið áður á Skagafréttum hefur Akraneskaupstaður ákveðið að taka tilboði Fastefli ehf. í byggingarétt á allt að 115 íbúðum á 6 lóðum á Sementreit.
Fastefli ehf. mun greiða rúmlega 800 milljónir kr. fyrir lóðirnar.
Um er að ræða fyrsta áfanga í uppbyggingu á svæðinu en á næstu misserum verða 300 íbúðir reistar til viðbótar á svæðinu.
Alls buðu fjórir aðilar í verkefnið. Við val á bjóðanda var horft annarsvegar til útlits og gæði bygginga og hinsvegar til byggingarréttargjalds.
Hér er tillagan sem endaði í þriðja sæti sæti frá Ferrum fasteignir ehf.