Ragnar Baldvin Sæmundsson skipar efsta sæti framboðslista Framsóknarflokksins og Frjálsra sem mun bjóða fram í bæjarstjórnarkosningunum í maí á þessu ári.
Listinn var kynntur í kvöld en talsverðar breytingar eru á framboðslistanum frá því sem var fyrir fjórum árum.
Ragnar Baldvin tekur við oddvitasætinu af Elsu Láru Arnardóttur sem skipar 7. sæti listans. Ragnar Baldvin var í öðru sæti listans í síðustu kosningum og Liv Åse Skarstad var í þriðja sæti listans fyrir fjórum árum.
Framsókn og frjálsir hafa verið í meirihluta með Samfylkingunni undanfarin fjögur ár í bæjarstjórn Akraness.
Ragnar, Liv, Elsa Lára, Ellert Jón Björnsson og Þröstur Karlsson eru þau einu sem eru á listanum í ár sem voru einnig í framboði fyrir fjórum árum. Aðrir á listanum eru því ný í framboði fyrir Framsókn og frjálsa.
- Ragnar Baldvin Sæmundsson – Verslunarmaður og bæjarfulltrúi.
- Liv Åse Skarstad – Verkefnastjóri.
- Sædís Alexía Sigurmundsdótir – Verkefnastjóri.
- Magni Grétarsson – Magni Grétarsson – Byggingatæknifræðingur.
- Aníta Eir Einarsdóttir – Hjúkrunarnemi.
- Guðmann Magnússon – Löggildur áfengis – og vímuefnaráðgjafi.
- Elsa Lára Arnardóttir – Aðstoðarskólastjóri og bæjarfulltrúi.
- Ellert Jón Björnsson – Fjármálastjóri.
- Martha Lind Róbertsdóttir – Forstöðumaður búsetuþjónustu fatlaðra.
- Róberta Lilja Ísólfsdóttir – Lögfræðinemi og knattspyrnukona.
- Monika Gróska – Verslunarmaður.
- Jóhannes Geir Guðnason – Birgðastjóri, viðskiptafræðingur.
- Sigrún Ágústa Helgudóttir – þjónusturáðgjafi.
- Eva Þórðardóttir – Stuðningsfulltrúi, tækniteiknari.
- Sigfús Agnar Jónsson – Vélfræðingur, vaktstjóri.
- Þórdís Eva Rúnarsdóttir – Framhaldsskólanemi.
- Þröstur Karlsson – Vélstjóri.
- Gestur Sveinbjörnsson – Eldriborgari og fyrrum sjómaður.