Geir, Valdimar og Karitas verða aðalfulltrúar í kjörstjórn Akraness 2022

Yfirkjörstjórn Akraness fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí hefur verið skipuð.

Bæjarstjórn Akraness samþykkti tillögur frá oddvitum þeirra þriggja framboða sem verða á kjörseðlinum.

Aðalfulltrúar eru þau: Geir Guðjónsson (S-Samfylkingin), Valdimar Axelsson (D-Sjálfstæðisflokkur)
Karitas Jónsdóttir (B-Framsókn og frjálsir).

Varafulltrúar eru þau: Ingibjörg Valdimarsdóttir (S-Samfylkingin), Brynjar Sigurðsson (D-Sjálfstæðisflokkur), Hlini Baldursson (B-Framsókn og frjálsir).

Ný kosningalög sem tóku gildi nýverið og eru talsvert strangari reglur en áður voru í gildi hvað varðar hæfi kjörstjórnarmanna.

Í kosningalögunum, 18. grein þar sem kveður á um hæfi kjörstjórnarmanna segir að fulltrúi í kjörstjórn teljist vanhæfur og beri að víkja sæti ef maki hans, fyrrverandi maki sambúðarmaki, fyrrverandi sambúðarmaki eða einstaklingur skyldur eða mægður honum í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti vegna ættleiðingar er á framboðslistar.

Yfirkjörstjórn Akraneskaupstaðar árið 2018 var þannig skipuð:
Hugrún Olga Guðjónsdóttir formaður, Einar Gunnar Einarsson og Björn Kjartansson.