Nýir eigendur hafa nú tekið við húsnæðinu þar sem að Bílver hefur verið með starfsemi sína frá árinu 2006.
Eins og áður hefur komið fram á skagafrettir.is hefur Bílver hætt starfsemi í húsnæðinu við Innesveg.
Þjónusta við bifreiðar verður áfram til staðar í húsnæðinu en með öðru sniði.
Fyrirtækið Löður mun setja upp bílaþvottastöð í hluta af húsnæðinu. Samkvæmt heimildum Skagafrétta verður bílaþvottastöðin í vesturenda húsnæðisins. Kallabakarí – sem er í austurenda hússins verður áfram í því húsnæði en bakaríið opnaði þar í byrjun ágústmánaðar árið 2018.
Löður hafði áður sótt um að setja upp sjálfvirka bílaþvottastöð við bensínafgreiðslu Orkunnar við Skagabraut 43.
Umsóknin var samþykkt í bæjarráði Akraness á fundi ráðsins þann 27. júlí á síðasta ári. Ekkert verður að byggingu á húsi undir bílaþvottastöð við Skagabrautina.
Bílaþvottastöðin Löður var stofnuð árið 2000. Skel er eigandi Löðurs en fyrirtækið er með 15 bílaþvottastöðvar á landinu öllu.