Skagamaðurinn Arnar Bergmann Gunnlaugsson er líklegastur til þess að taka við íslenska A-landsliðinu í knattspyrnu karla.
Arnar er þjálfari Víkings í Reykjavík en samkvæmt heimildum mbl.is eru forráðamenn KSÍ í viðræðum við Víkinga – en Arnar á eftir eitt ár af samningi sínum við félagið.
Arnar, er 51 árs og fundaði hann með KSÍ á dögunum, en KSÍ ræddi einnig við tvo aðra þjálfara.
Ef Arnar verður ráðinn sem þjálfari A-landsliðs karla verður hann þriðji Skagamaðurinn sem ráðinn er aðalþjálfari liðsins.
Ríkharður Jónsson var fyrsti Skagamaðurinn sem tók þetta verkefni af sér árið 1962 og hann tók á ný við liðinu sem þjálfari á árunum 1969-1971.
Guðjón Þórðarson tók við A-landsliði karla árið 1997 og gegndi hann því starfi til ársins 1999.
Framundan hjá karlalandsliðinu eru tveir umspilsleikir gegn Kósovó um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar og fara þeir fram í mars.
- Frederick Steele og Murdo McDougall (1946)
- Roland Bergström (1947)
- Joe Devene (1948)
- Fritz Buchloh (1949)
- Óli B Jónsson (1951)
- Franz Köhler (1953)
- Karl Guðmundsson (1954–1956)
- Alexander Wier (1957)
- Óli B Jónsson (1958)
- Karl Guðmundsson (1959)
- Óli B Jónasson (1960)
- Karl Guðmundsson (1961)
- Ríkharður Jónsson (1962)
- Karl Guðmundsson (1963–1966)
- Reynir Karlsson (1967)
- Walter Pfeiffer (1968)
- Ríkharður Jónsson (1969–1971)
- Duncan McDowell (1972)
- Eggert Jóhannesson (1972)
- Henning Enoksen (1973)
- Tony Knapp (1974–1977)
- Jurí Ilitchev (1978–1979)
- Guðni Kjartansson (1980–1981)
- Jóhannes Atlason (1982–1983)
- Tony Knapp (1984–1985)
- Siegfried Held (1986–1989)
- Guðni Kjartansson (1989)
- Bo Johansson (1990–1991)
- Ásgeir Elíasson (1991–1995)
- Logi Ólafsson (1996–1997)
- Guðjón Þórðarson (1997–1999)
- Atli Eðvaldsson (2000–2003)
- Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson (2003–2005)
- Eyjólfur Sverrisson (2006–2007)
- Ólafur Jóhannesson (2007-2011)
- Lars Lagerbäck (2011–2013)
- Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson (2013–2016)
- Heimir Hallgrímsson (2016-2018)
- Erik Hamrén (2018-2020)
- Arnar Þór Viðarsson (2020-2023)
- Åge Hareide (2023-2024)
- Arnar Gunnlaugsson?