Kalman – tónlistarfélag Akraness stendur fyrir tónleikum í Akraneskirkju nk. fimmtudagskvöld, 26. febrúar kl. 20. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þar kemur fram hinn stórkostlegi harmónikkuleikari, Flemming Viðar Valmundsson á einleikstónleikum þar sem
frásagnarmáttur klassísku harmóníkunnar verður í fararbroddi.

Tónleikaprógramið samanstendur af verkum eftir tónskáld sem samið hafa sérstaklega fyrir harmóníkuna á síðustu áratugum, verk eftir Scarlatti, Mossenmark, Filippi, Sørensen, Koch og Zorn. Verkin eiga það sameiginlegt að sýan nær öll hljómblæbrigði og vænghaf hljóðfærisins, auk þess að reyna á þol þess sem leikur á það.
Þá hafa sum þeirra jafnvel gengið enn lengra og reyna ekki eingöngu á tóna hljóðfærisins heldur einnig hljóðfæraleikarann sjálfan þar sem ýmist reynir á raddböndin eða leikræna getu spilarans. En það er einmitt þar sem áhugasvið Flemmings liggur, að sameina hlutverk hljóðfærisins og hljóðfæraleikarans í eitt, þannig að úr verði heildstæð og hrifnæm útkoma sem áheyrendur og áhorfendur fá að njóta.
Flemming hefur verið í námi í Konunglega Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn síðan 2017 og hefur þar notið handleiðslu þeirra heimsvirtu Prof. Geir Draugsvoll og Prof. Andreas Borregaard.
Hann hefur þar lagt sérstaka áherslu á túlkun og miðlun nútímatónlistar og kannað hvernig sviðsframkoma og innlifun koma innihaldi nútímatónverka til áhorfenda.
Flemming er staddur á Íslandi um þessar mundir þar sem hann leikur í óperunni Carmen sem sýnd er í Tjarnarbíói í Reykjavík, en hljómsveitina skipa auk Flemmings Una Sveinbjarnardóttur fiðluleikari og Jacek Karwan kontrabassaleikari.
Aðgangseyrir er kr. 3.500 og miðasala er við innganginn.








